Sumarið 2016 býður Keilir í fjórða sinn upp á tæknibúðir fyrir börn og unglinga á aldrinum 10 til 13 ára (2003 - 2006). Námskeiðin verða haldin í húsnæði Keilis og munu þátttakendur njóta góðs af þeirri aðstöðu sem tæknifræðideild Keilis hefur uppá að bjóða.
Markmiðið er að auka þekkingu og vitund unglinga á tækni og vísindum. Mikið verður lagt uppúr því að útskýra hvernig tækni og vísindi hefur áhrif á allt okkar daglega líf.
Framkvæmdar verða spennandi tilraunir og æfingar ásamt þroskandi og skemmtilegum verkefnum undir leiðsögn leiðbeinenda.
Í lok námskeiðsins fá allir krakkarnir viðurkenningu fyrir að hafa lokið Tæknibúðum Keilis.
Dagsetningar og verð
- Námskeiðið er í 5 daga, 3 klst á dag.
- Frá mánudegi 20. júní til föstudags 24. júní.
- Hægt er að velja milli þess að vera frá 9:00 12:00 eða 13:00 - 16:00.
Námskeiðin eru háð lágmarksþátttöku.
- Námskeið 1: 20. - 24. júní kl 9:00 - 12:00 (verð: 9.900). Skráning
- Námskeið 2: 20. - 24. júní kl 13:00 - 16:00 (verð: 9.900). Skráning
Frá Reykjavík gengur strætó beint hingað á Ásbrú. Allar upplýsingar um samgöngur milli höfuðborgarsvæðisins og Reykjanesbæjar má finna hér.
Hlustaðu á umfjöllun um Tækni- og vísindasmiðju Keilis í Morgunútvarpi RÚV hérna. Nánari upplýsingar veitir Sigrún Svafa Ólafsdóttir verkefnastjóri á netfangið viskubrunnur@keilir.net eða í síma 578 4091.