Fara í efni

Tæknifræði á vorönn 2013

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í tæknifræðinám Keilis sem hefst í janúar 2013.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í tæknifræðinám Keilis sem hefst í janúar 2013. Umsóknarfrestur er til 10. desember næstkomandi. 

Keilir býður upp á háskólanám í Orku- og umhverfistæknifræði, þar sem nemendur læra að hanna og þróa tækni til að beisla og nýta græna og endurnýjanlega orku, og Mekatróník hátæknifræði, þar sem nemendur læra að hanna og smíða rafeinda- og tölvustýrðan búnað til að bæta gæði daglegs lífs fólks og að auka sparnað og hagkvæmni í rekstri fyrirtækja.