Fara í efni

Tæknifræðinám Háskóla Íslands og Keilis til Hafnarfjarðar

Hafnarfjarðarbær og Háskóli Íslands hafa komist að samkomulagi um að háskólinn fái aðstöðu fyrir BS-nám í tæknifræði í Menntasetrinu við Lækinn nú í haust og mun kennsla hefjast strax á haustönn 2018. 

Boðið hefur verið upp á tæknifræðinám til BS-gráðu á vegum Háskóla Íslands á vettvangi Keilis frá árinu 2009. Frá upphafi hefur starfsemin farið fram á Ásbrú í Reykjanesbæ samhliða uppbyggingu annarra námsgreina innan Keilis. Líkt og í öðrum verk- og tæknigreinum hefur á undanförnum árum orðið fækkun nýnema í tæknifræði og var á síðastliðnu skólaári ráðist í umfangsmiklar breytingar á fyrirkomulagi námsins. Meðal úrræða var að bjóða upp á fyrsta árið í fjarnámi og rýmka inntökuskilyrðin þannig að einstaklingar með menntun í verk- og iðnnámsgreinum ættu greiðari aðgang að náminu. Þessar breytingar hafa nú þegar skilað árangri og fjölgar umsóknum í tæknifræðinámið milli ára. 

Meðal annarra tillagna fulltrúa Háskóla Íslands og Keilis til að auka aðsókn var að færa tæknifræðinámið nær höfuðborgarsvæðinu. Í því augnamiði var ákveðið í sumar að kanna möguleika á því að flytja kennslu í tæknifræði í Menntasetrið í Hafnarfirði frá og með haustinu og voru áformin samþykkt í bæjarráði Hafnafjarðar þann 16. ágúst síðastliðinn. Nemendur munu þó um sinn áfram nýta sérhæfðar rannsóknarstofur og aðstöðu á Ásbrú, meðal annars í efnafræðirannsóknum og hátæknifræði.

Nemendafjöldi í flestum deildum Keilis hefur aukist á undanförnum árum og með auknu og fjölbreyttara námsframboði hefur skort kennslustofur í aðalbyggingu skólans á Ásbrú í Reykjanesbæ. Þá hafa breyttir kennsluhættir kallað á verulegar breytingar á kennsluhúsnæðinu, þar á meðal fleiri opin rými, hópavinnuherbergi nemenda og nútímalegar og rýmri kennslustofur. Með flutning tæknifræðináms Háskóla Íslands í Menntasetrið við Lækinn mun skapast svigrúm til að hýsa allt annað bóklegt nám á vegum Keilis undir einu þaki. 

Forsvarsmenn Háskóla Íslands og Keilis árétta að áfram verður boðið upp á nám í tæknifræði samstarfi skólanna tveggja. Með breytingunum er vonast til þess að í framtíðinni verði hægt að byggja upp enn betri aðstöðu og öflugt tæknifræðinám í Hafnarfirði sem geti svarað bæði þörfum nemenda og kröfum atvinnulífsins.