Á ársfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins 18. nóvember voru haldin mörg erindi og margt fróðlegt kom þar fram. En það sem stóð upp úr er verðlaunaafhending er hún Hjördís Unnur Másdóttir nemandi í Orku- og umhverfistæknifræði Keilis fékk hinn glæsilega titil "Fyrirmynd í námi fullorðinna".
Hjördís var í fyrsta hópi er útskrifaðist úr Menntastoðum í MSS, lauk námi á Háskólabrú Keilis nú í sumar og hóf síðan nám í Orkutæknifræðinni í haust. Hjördis var tilnefnd af Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS). Hjördís Unnur er svo sannarlega vel að þessari viðurkenningu komin en við teljum þetta einnig viðurkenningu fyrir nám í Menntastoðum og á Háskólabrú. Hjördís hélt frábæra þakkarræðu þegar hún tók við þessari viðurkenningu ásamt blómvendi og forláta fartölvu.