Fara í efni

Tilkynning frá stjórn Keilis

Keilir á Ásbrú
Keilir á Ásbrú
Eigendur Keilis hafa ákveðið að allur arður sem verður til í félaginu verði notaður til að byggja upp skólann.

Eigendur Keilis hafa ákveðið að ekki verði greiddur arður úr félaginu. Ákveðið hefur verið að allur arður sem verður til í félaginu verði notaður til að byggja upp skólann, í samræmi við markmið hans.

Með þessu er tryggt að allt fé skólans, opinbert fé jafnt sem sjálfsaflafé rennur til þess að bæta og þróa aðstöðu, kennslu og kennsluhætti þannig að hann verði ávallt í fararbroddi á sínum sviðum. Þannig sýna eigendur Keilis stuðning sinn við menntun og uppbyggingu atvinnulífs, ekki bara í Reykjanesbæ heldur landinu öllu.