23.04.2021
Leiðsögunám í ævintýraferðamennsku á vegum Heilsuakademíu Keilis og Thompson Rivers University hefst næst í ágúst 2021. Umsóknarfrestur er til 15. júní.
Námið er á háskólastigi (60 ECTS) og tekur átta mánuði, þar sem um helmingur námstímans fer fram í verklegum áföngum víðsvegar um landið. Námið hentar vel þeim sem hafa mikinn áhuga á ferðamennsku og útivist við krefjandi aðstæður. Útskrifaðir nemendur hafa möguleika á að vinna á óhefðbundnum og fjölbreyttum starfsvettvangi með góðum starfsmöguleikum víða um heim í ört vaxandi grein ævintýraferðamennsku.
Er leiðsögunám í ævintýraferðamennsku fyrir þig?
Námið er grunnur að helstu þáttum ævintýraferðamennsku. Það hentar þeim sem vilja:
- Kynnast starfi ævintýraleiðsögumannsins
- Bæta við þekkingu sína á ævintýraferðamennsku
- Skoða möguleikann á að gera ævintýraleiðsögn að starfsframa
- Fara í hlutfallslega stutt og hnitmiðað nám
- Hafa möguleika á að fara í nám sem gefur möguleika að fá metið í framhaldsnám