Fara í efni

Umsókn um nám í tæknifræði

Skráning í námskeið á haustmisseri fer fram á Uglu - vefsetri Háskóla Íslands. Nánari upplýsingar um umsóknarferlið má einnig nálgast á heimasíðu Rafmagns- og tölvuverkfræðideildar Háskóla Íslands og á heimasíðu Keilis.

BS gráða í tæknifræði á vegum Háskóla Íslands

Keilir býður upp á háskólanám í tæknifræði á vegum Háskóla Íslands og fer námið fram í glæsilegri aðstöðu námsins á Ásbrú. Boðið eru upp á tvær námslínur: Mekatróník hátæknifræði með áherslu á tölvu- og véltækni og nýtt nám í Iðntæknifræði fyrir efna- og líftækniiðnað.

Keilir leitast við að vera í forystu um tæknifræðimenntun og nýsköpun í samstarfi við atvinnulífið, með því að mennta tæknifræðinga með áherslu á hagnýta þekkingu, reynslu og góða samskiptahæfni.