Fara í efni

Umsókn um tæknifræðinám á haustönn 2017

Hægt er að sækja um háskólanám á haustönn 2017 í mekatróník hátæknifræði (BS gráðu) á vegum Háskóla Íslands og Keilis. Umsóknir skulu berast með tölvupósti á Nemendaskrá HÍ fyrir 31. júlí næstkomandi.

Keilir býður upp á háskólanám í tæknifræði á vegum Háskóla Íslands og fer námið fram í glæsilegri aðstöðu námsins á Ásbrú. Keilir leitast við að vera í forystu um tæknifræðimenntun og nýsköpun í samstarfi við atvinnulífið, með því að mennta tæknifræðinga með áherslu á hagnýta þekkingu, reynslu og góða samskiptahæfni. 

Nánari upplýsingar um námið má nálgast á nýrri heimasíðu Háskóla Íslands.