16.10.2015
Opið er fyrir umsóknir í tæknifræðinám Keilis og Háskóla Íslands á vorönn 2016. Umsóknarfrestur er til 30. nóvember.
Skráning í námskeið á haust- og vormisseri fer fram á Uglu - vefsetri Háskóla Íslands. Nánari upplýsingar um umsóknarferlið má einnig nálgast á heimasíðu Rafmagns- og tölvuverkfræðideildar Háskóla Íslands og á heimasíðu Keilis.
Hægt er að hefja tæknifræðinám á vorönn á tvennan hátt:
- Byrja á þriggja vikna lotu vormisseris sem hefst þann 23. nóvember.
- Byrja á 10 vikna lotu vormisseris þann 4. janúar.
Til að hefja beint nám í tæknifræði hjá Keili skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi. Sambærilegt stúdentsprófi teljast:
- 4. stigs próf frá vélstjórnarbraut Tækniskólans (áður Vélskóli Íslands).
- Próf frá frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóli Íslands/Tækniskóli Íslands).
- Lokapróf frá Verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar Keilis.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Guðmundsson, forstöðumaður tæknifræðináms Keilis og Háskóla Íslands, eða skrifstofa Keilis í síma 578 4000 og á kit@keilir.net.