Fara í efni

Uppsetning vindmyllu við Keili

Í byrjun apríl hófu nemendur tæknifræðináms Keilis að undirbúa grunninn fyrir vindmyllu Orkurannsókna sem notuð verður við kennslu og rannsóknir hjá Keili.

Í byrjun apríl hófu nemendur tæknifræðináms Keilis að undirbúa grunninn fyrir vindmyllu Orkurannsókna sem notuð verður við kennslu og rannsóknir hjá Keili. Nemendurnir eru meðal annars að vinna að lagningu samskiptasnúra og orkukapla, auk þess að reisa mastur fyrir vindmylluna.

Kerfið í heild sinni mun hafa 100 vatta vindhverfla ásamt veðureftirlitsbúnaði og mun orkan sem myndast frá vindhverflunum vera notuð til þess að lýsa upp upplýsingaskilti sem staðsett verður við vindmylluna og knýja sjálfvirkan gagnaritara.