08.06.2012
Um 180 nemendur útskrifast frá Keili föstudaginn 15. júní næstkomandi.
Í sumar útskrifast um 180 nemendur frá Keili úr Háskólabrú, atvinnuflugmannsnámi, flugumferðarstjórn, flugþjónustu, flugrekstrarfræði og ÍAK einkaþjálfun. Athöfnin fer fram föstudaginn 15. júní kl. 15:00 í Andrews á Ásbrú en nemendur mæta klukkustund fyrr í myndatöku.