13.08.2014
Útskrift nemenda af Verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar Keilis fer fram í Andrews Theater á Ásbrú föstudaginn 14. ágúst næstkomandi. Athöfnin hefst kl. 15:00 en nemendur þurfa að mæta kl. 14:00 í myndatöku og æfingu. Áætlað er að athöfnin taki um klukkustund.
Nemendur eru beðnir um að senda póst á utskrift@keilir.net til að skrá sig í útskrift, engar takmarkanir eru á fjölda gesta.