Fara í efni

Útskrift í tæknifræðinámi Keilis

Hluti af útskriftarhóp tæknifræðináms Keilis 2012
Hluti af útskriftarhóp tæknifræðináms Keilis 2012

Laugardaginn 23. júní útskrifast fyrsti árgangur í tæknifræðinámi Keilis auk þess sem hægt verður að skoða lokaverkefni nemenda.

Laugardaginn 23. júní verður fyrsti árgangur í tæknifræðinámi Keilis útskrifaður í Andrews Theater að Ásbrú. 15 nemendur munu útskrifast með BS gráðu í tæknifræði. Útskriftin hefst klukkan 14:00 en fram að athöfninni geta gestir kynnt sér lokaverkefni nemenda í anddyri Andrews.

Dagskrá útskriftar laugardaginn 23. júní

12:00 – 13:50   Kynningar á lokaverkefnum (sýning á veggspjöldum)
14:00 – 15:30   Útskriftarathöfn

Kynningar á lokaverkefnum og útskriftarathöfnin er öllum opin, og við hvetjum áhugasama að kynna sér verkefni nemenda og samgleðjast útskriftarhópnum.