Fara í efni

Útskrift Keilis í júní 2017

Föstudaginn 9. júní útskrifast nemendur úr eftirfarandi deildum Keilis: Atvinnuflugmannsnámi, Flugvirkjanámi, Háskólabrú og Íþróttaakademíu (einka- og styrktarþjálfun og leiðsögunámi í ævintýraferðamennsku). Útskriftin fer fram kl. 15:00 í Andrews Theater á Ásbrú í Reykjanesbæ.

Samtals verða 115 nemendur brautskráðir. Útskriftarnemendur eru beðnir um að mæta kl. 13:45 stundvíslega, vegna myndatöku og æfingar. Áætlað er að athöfnin taki um klukkustund.

Vinsamlegast skráið ykkur í útskrift á netfangið utskrift@keilir.net og tilgreinið gestafjölda. Hámarksfjöldi gesta er 2-3 með hverjum útskriftarnema.