22.01.2014
Föstudaginn 24. janúar næstkomandi verður útskrift nemenda Keilis.
Yfir hundrað nemendur munu útskrifast af Háskólabrú (bæði fjarnámi og staðnámi), flugþjónustubraut, flugumferðastjórn, atvinnuflugmannsnámi og Íþróttaakademíu Keilis. Athöfnin hefst kl. 15:00 og fer fram í Andrews leikhúsinu á Ásbrú.
Þess má geta að þúsundasti nemandi Háskólabrúar Keilis útskrifast frá skólanum við þetta tækifæri.