Fara í efni

Útskrift nemenda Keilis í júní

Útskriftin fer fram í Andrews Theater á Ásbrú
Útskriftin fer fram í Andrews Theater á Ásbrú

Keilir útskrifar nemendur úr Háskólabrú, Íþróttaakademíu, Flugakademíu, tæknifræðinámi og leiðsögunámi í ævintýraferðamennsku, í Andrews Theater á Ásbrú í Reykjanesbæ föstudaginn 20. júní næstkomandi.

Í júní verða þrjár útskriftir hjá Keili, ein í Samkomuhúsinu á Akureyri og tvær á Ásbrú í Andrews Theatre. Gert er ráð fyrir 1-2 gestum með hverjum útskriftarnema, velji nemar að koma með fleiri gætu þeir þurft að standa. Áætlað er að hver athöfn taki um klukkustund. Nemendur eru beðnir um að senda póst á utskrift@keilir.net til að skrá sig í útskrift, vinsamlega takið fram fjölda gesta og ef þið áætlið að útskrifast frá Akureyri.

Hér fyrir neðan má sjá nánari upplýsingar um hverja útskrift

  • Föstudaginn 20. júní kl. 14:00 í Andrews Theater á Ásbrú í Reykjanesbæ. Útskriftarnemendur mæta kl. 13:00, vegna myndatöku og æfingar. Útskrifað verður af eftirfarandi námsbrautum: Háskólabrú, ATPL og ÍAK.
  • Föstudaginn 20. júní kl. 16:30 í Andrews Theater á Ásbrú í Reykjanesbæ. Útskriftarnemendur mæta kl. 15:30, vegna myndatöku og æfingar, gestafjöldi er ekki takmarkaður. Útskrifað verður af eftirfarandi námsbrautum: Tæknifræðinámi Keilis og Háskóla Íslands, ásamt nemendum úr Adventure Sport Certificate námi Keilis og Thompson Rivers University.