Fara í efni

Útskrift nemenda Keilis í júní

Útskriftin fer fram í Andrews Theater á Ásbrú
Útskriftin fer fram í Andrews Theater á Ásbrú

Föstudaginn 5. júní fer fram sumarútskrift Keilis, en þá verða útskrifaðir nemendur af Háskólabrú, atvinnuflugmannsnámi, ÍAK einka- og styrktarþjálfun, auk leiðsögunáms í ævintýraferðamennsku. Athöfnin fer fram í Andrews Theater á Ásbrú og hefst kl. 15:00.

Útskriftarnemendur eiga að mæta kl. 14:00, vegna myndatöku og æfingar. Nemendur eru beðnir um að senda póst á utskrift@keilir.net til að skrá sig í útskrift. Vinsamlegast takið fram fjölda gesta.