Fara í efni

Útskriftir í Keili í júní

Í júní fara fram þrjár útskriftir í Keili, ein fer fram í SÍMEY og tvær á Ásbrú. Áætlað er að hver athöfn taki um klukkustund og gert er ráð fyrir að hver útskriftarnemi geti boðið 1-2 gestum með sér.

Nemendur eru beðnir um að senda póst á utskrift@keilir.net til að skrá sig í útskrift, vinsamlegast takið fram fjölda gesta og ef þið áætlið að útskrifast frá Akureyri.

Hér fyrir neðan má sjá nánari upplýsingar um hverja útskrift:

  • Fimmtudaginn 4. júní kl. 17:00 í SÍMEY á Akureyri.
  • Föstudaginn 5. júní kl. 15:00 í Andrews Theater á Ásbrú. Útskriftarnemendur mæta kl. 14:00, vegna myndatöku og æfingar. Útskrifaðir verða nemendur af Háskólabrú, atvinnuflugmannsnámi, ÍAK einka- og styrktarþjálfun, auk leiðsögunáms í ævintýraferðamennsku.
  • Föstudaginn 19. júní kl. 15:00 í Aðalbyggingu Keilis. Útskriftarnemendur mæta kl. 14:00, vegna myndatöku og æfingar, gestafjöldi er ekki takmarkaður. Brautskráðir verða nemendur úr tæknifræðinámi Háskóla Íslands og Keilis.