Fara í efni

Viltu vinna með okkur?

Keilir óskar eftir að ráða starfsmann í tölvuþjónustu. Leitað er eftir jákvæðum og áhugasömum aðila sem hefur áhuga á því að prófa nýja hluti í tækninni, um er að ræða fullt starf frá og með ágúst 2014. Skilyrði að viðkomandi sé búsettur á Suðurnesjum. 

Hæfniskröfur:

  • Góð þekking á uppbyggingu og viðhaldi tölvukerfa
  • Úrræðagóður og tilbúin að sjá lausnir
  • Hafi hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfileika
  • Sýni frumkvæði og árvekni ásamt þjónustulund.

Umsóknarfrestur til og með 24.júní 2014. Nánari upplýsingar veitir Björk Guðnadóttir í síma 578 4080 eða á netfanginu bjork@keilir.net.