11.03.2010
Dregnir hafa verið út vinningshafar í happdrætti Keilis frá Opna háskóladeginum.
Dregnir hafa verið út vinningshafar í happdrætti Keilis frá Opna háskóladeginum.
Laugardaginn 20. febrúar var Opni háskóladagurinn í HÍ. Þúsundir áhugasamra nemenda komu til að kynna sér þær
námsbrautir sem í boði eru. Keilir kynnti við það tækifæri námsframboð fyrir haustið 2010 og starfsemi skólans. Gestum bauðst auk
þess að taka þátt í happdrætti þar sem kynningarflug í flugvélum Keilis var í boði.
Hátt í fimmhundruð manns tóku þátt í happdrættinu og hafa nú verið dregnir út tveir heppnir þátttakendur:
Stefán Valur Stefánsson
Svava Finsen
Keilir þakkar góðar undirtektir og óskar vinningshöfum til hamingju með kynningarflugið.