Fara í efni

Wet-drill hjá Flugþjónustubraut

Hluti af þjálfun verðandi flugfreyja og þjóna er að æfa björgunaraðgerðir á vatni. Hluti af þjálfun verðandi flugfreyja og þjóna er að æfa björgunaraðgerðir á vatni.

Nemendur á Flugþjónustubraut Keilis nutu leiðsagnar Hilmars Snorrasonar og félaga hans hjá Slysavarnarskóla sjómanna, sem eru alvanir slíkri þjálfun og sinna henni af mikilli fagmennsku. Æfingin fól meðal annars í sér rennuróður, meðferð björgunarbáta, björgun upp í bát og björgunarsund.

Nemendur stóðu sig með ágætum, mikil stemmnig og fjör var í hópnum, að enda tilbreyting að líta upp úr bókunum  og reyna sig við þessar aðstæður.