- 20 stk.
- 02.09.2019
Flugakademía Keilis útskrifaði átján atvinnuflugnema laugardaginn 31. ágúst síðastliðinn. Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíunnar, flutti ávarp, og Snorri Páll Snorrason, skólastjóri Flugakademíunnar stýrði athöfninni.
Dúx var Jacob Dahl Lindberg með 9,75 í meðaleinkunn og fékk hann bókagjöf frá Icelandair og flugtíma í ALSIM frá Keili - Flugskóla Íslands. Ræðu útskriftarnema flutti Philip Ljungberg.
Með útskriftinni hafa samtals 89 atvinnuflugnemar lokið bóklegu námi í skólanum það sem af er ársins og samtals 307 nemendur frá upphafi skólans árið 2009.